Menning

Söluaukning hjá Hyundai

Sala á Hyundai í Vestur-Evrópu hefur aukist um 37% á ársgrundvelli og er þetta mesta samfellda söluaukningin sem Samtök evrópskra bílaframleiðenda hafa skráð frá árinu 1977 hjá einum framleiðenda. Hlutdeild Hyundai nemur nú 2,1% en til samanburðar má nefna að söluhæstu merkin eru á bilinu 8--11%. Vinsælustu bílar Hyundai á Evrópu eru sportjeppinn Santa Fe ásamt fimm dyra bílunum Getz og Matrix. Sókn Hyundai hefur einkum verið í Vestur-Evrópu en gert er ráð fyrir að það breytist með nýjum höfuðstöðvum Hyundai fyrir Mið- og Austur-Evrópu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×