Innlent

Verðir í Valsheimilinu

Verkfallsverðir kennara fóru í alla skóla á höfuðborgarsvæðinu í gær til að kanna hvort þar væri unnið í trássi við verkfall grunnskólakennara. Þá heimsóttu þeir einnig tuttugu fyrirtæki og stofnanir í Reykjavík, þar á meðal leikjanámskeið KB banka í Valsheimilinu. Ólafur Loftsson, formaður Kennarafélags Reykjavíkur situr í verkfallsstjórn kennara. Hann segir að verkfallsverðir skili athugasemdum sínum til verkfallsstjórnarinnar sem meti síðan hvort ástæða sé til að bregðast við. Verkfallsmiðstöð kennara er í Borgartúni 22.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×