Innlent

Furðar sig á undanþágunefnd

Undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga hefur hingað til synjað öllum undanþágubeiðnum vegna kennslu fatlaðra barna í yfirstandandi verkfalli grunnskólakennara. Í nefndinni situr einn fulltrúi sveitarfélaganna og einn fulltrúi kennara. Ágreiningur hefur verið um allar undanþágubeiðnir þar sem fulltrúi sveitarfélagannna hefur viljað veita undanþágur í öllum tilfellum en fulltrúi kennara hefur synjað þeim öllum. Halldór Gunnarsson, formaður landssamtakanna Þroskahjálpar, segist hafa orðið fyrir ákaflega miklum vonbrigðum með niðurstöðuna og telur hana ekki vera baráttu kennara til framdráttar. Hann kveðst skilja kennara í sjálfri kjarabaráttunni og segir þá hafa margt til síns máls. Hins vegar hljóta að vera spurningar í öllum málum hvaða meðölum megi beita. „Mér finnst alveg óþolandi þegar menn beita fyrir sig neyðarástandi hjá fjölskyldum fatlaðra barna til að ná fram markmiðum sínum, hver sem á í hlut,“ segir Halldór og furðar sig á ummælum fulltrúa kennara í undanþágunefnd í fréttum Stöðvar 2 í gær þar sem hann sagði að jafnt yrði yfir alla kennara að ganga. Halldór trúir ekki öðru en þetta séu mismæli.  Halldór segir þá staðreynd að fötluð börn fái ekki notið kennslu á meðan á verkfalli stendur oft leiða til þess að afturför verði á þroska barnanna. „Fjölskyldur fatlaðra barna eiga oft nógu erfitt með að púsla sínu lífi saman á hverjum degi þótt ekkert verkfall sé. Hjá sumum jaðrar jafnvel við neyðarástand þegar verst lætur,“ segir Halldór og efast ekki um að slíkt ástand ríki á heimilum margra fatlaðra barna nú um stundir.  Hægt er að hlusta á viðtal við Halldór Gunnarsson, formann landssamtakanna Þroskahjálpar, úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×