Erlent

Fjórir segja af sér

Fjórir ráðherrar í Bandaríkjastjórn hafa sagt af sér. Auk Colins Powell, utanríkisráðherra, hafa þau Rod Paige, menntamálaráðherra, Ann Veneman landbúnaðarráðherra og Spencer Abraham, orkumálaráðherra sagt af sér embætti. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, átti að funda með Powell á morgun en ljóst er að sá fundur er í óvissu. Powell segist ætla að störfum halda áfram þar til fundin er eftirmaður. Condolísa Rice, öryggisráðgjafi forsetans er talin líkleg sem eftirmaður Powels en vangaveltur hafa reyndar líka verið uppi um að hún hyggist hverfa aftur til fræðimennsku í Kaliforníu og hætta í stjórnmálum. Powell hefur verið talsmaður hófsamari aðgerða í utanríkismálum en Bush bandaríkjaforseti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×