Innlent

Göngin opnuð á ný

Loka þurfti Hvalfjarðargöngunum í tvo klukkutíma eftir umferðaróhapp sem varð á sjöunda tímanum í kvöld. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í göngunum með þeim afleiðingum að bíllinn fór utan í gangavegginn. Eldri hjón sem voru í bílnum voru flutt á slysadeild Landspítalans en þau voru ekki talin alvarlega slösuð. Bíllinn skemmdist mikið og þurfti að fjarlægja hann með kranabíl. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík þykir mildi að ekki hafi farið verr. Langar bílaraðir mynduðust við gangamunnana en umferð var hleypt í gegn á nýjan leik laust fyrir klukkan níu í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×