Innlent

Engin innbrot um helgina

Engin innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í Kópavogi um síðustu helgi, hvorki í bíla né íbúðarhús og vakti það athygli lögreglunnar. Helgin var að mestu tíðindalítil en tilkynnt var um fimm minniháttar árekstra. Allnokkrir ökumenn voru kærðir fyrir umferðarlagabrot eins og hraðakstur, notkun farsíma við akstur og fyrir að nota ekki öryggisbelti. Sérstakt eftirlit með notkun bílbelta verður í Kópavogi næstu vikur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×