Stefnir í nýjar kosningar 1. desember 2004 00:01
Líkur á að Hæstiréttur Úkraínu úrskurði forsetakosningarnar 21. nóvember síðast liðinn ógildar jukust heldur í gær þegar Viktor Janúkovitsj forsætisráðherra fór þess á leit við dómstólinn að hann ógilti kosningarnar. Áður hafði stjórnarandstæðingurinn Viktor Júsjenkó farið þess á leit við dómstólinn. Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði í gær að áður en nýjar kosningar færu fram þyrfti að breyta lögum um framkvæmd kosninga og undirbúa aðstæður fyrir endurteknar kosningar. Solana sagði jafnframt að lagaspekingar Janúkovitsj og Júsjenkó myndu hittast í dag til að ræða hugsanlegar lagabreytingar. Júsjenkó vill kjósa sem fyrst og lagði til að kosið yrði 19. desember. Þá þvertók hann fyrir að endurtaka fyrri umferð kosninganna og sagðist aðeins samþykkja að seinni umferð kosninganna, sem nú er deilt um, yrði endurtekin. Að óbreyttum lögum verður að endurtaka báðar umferðir forsetakosninganna ef kosningarnar 21. nóvember verða lýstar ógildar. Þá geta fleiri frambjóðendur bæst í slaginn og eins er rætt um að Júsjenkó dragi sig í hlé ef svo fer. Júsjenkó og Janúkovitsj ræddu saman í gær ásamt Leóníd Kúsjma, fráfarandi forseta, og erlendum milligöngumönnum. Á þeim fundi samþykkti Júsjenkó að hefja viðræður um lausn deilunnar á ný og hét því að kalla stuðningsmenn sína frá stjórnarbyggingum sem þeir hafa setið um og ekki hleypt starfsmönnum inn í. "Ég held að ríkisstjórnin sé að gefa eftir vegna þrýstings frá almenningi og vestrænum stjórnmálamönnum," sagði Júsjenkó og bætti við: "Árangur hefur náðst í skipulagningu nýrra kosninga." Úkraínska þingið samþykkt vantraust á ríkisstjórn Janúkovitsj í gær. Óvíst er þó hvaða áhrif það hefur því forsætisráðherrann neitaði að taka mark á samþykkt þingsins. Hann sagðist hvorki taka mark á niðurstöðu atkvæðagreiðslu sem færu fram undir miklum þrýstingi, né gæti hann litið svo á að farið hefði verið að þingsköpum við framkvæmdina. Kúsjma getur beitt neitunarvaldi á samþykkt þingsins.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Erlent Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" Innlent „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Innlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Kjördagur framundan í Kanada Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað Rúmur helmingur óhress með Trump Eðlilegt að endurskoða sjálfstjórnarlögin Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Gröf Frans páfa opin gestum Bréf ritað um borð í Titanic seldist á tugi milljóna Sprenging í Íran varð 25 að bana Sjá meira