Innlent

Grjótkast og gröfuskemmdir

Skemmdarverk voru unnin á Akureyri aðfaranótt laugardags. Grjóti var kastað í gegnum rúðu á húsnæði verslunarinnar Raflampa sem staðsett er á Óseyri. Rúðan mölbrotnaði en mildi þykir að einungis einn lampi brotnaði inni í búðinni. Einnig var vegavinnutæki, grafa sem hafði verið skilin eftir á gatnamótum Glerárgötu og Hvannavalla stórskemmd, vélarhlífin brotin og snjó troðið inn á vélina og í hráolíutankinn. Ekkert bendir til þess að sömu aðilar hafi verið að verki og lögreglan veit ekki hver eða hverjir eru sekir um skemmdarverkin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×