Erlent

Böðull óttast áhrif dauðarefsinga

Fangar á dauðadeildum fangelsa í Sri Lanka eru uggandi eftir að forseti landsins nam úr gildi forsetatilskipun sem lagði blátt bann við því að dauðadómum yrði framfylgt. Hinir dauðadæmdu eru þó ekki þeir einu sem óttast um líf sitt, það gera líka böðull landsins og fangelsismálastjórinn. "Ég er berskjaldaður fyrir árás," sagði hinn 25 ára böðull, Suramimala Wijetunge, sem óttast að glæpagengi reyni að ráða hann af dögum nú þegar hann þarf að fara að taka menn af lífi. Þar til fyrir fáeinum vikum síðan var böðulsstarfið einfalt og þægilegt fyrir Wijetunga sem tók við starfinu af föður sínum sem fór á eftirlaun án þess að hafa nokkurn tíma tekið mann af lífi. Nú þarf hann hvort tveggja að búa sig undir að taka mann af lífi í fyrsta sinn og gæta að sér af ótta við banatilræði. Yfirmaður Wijetunge óttast líka um líf sitt. "Ég hef vopnaða verði með mér hvert sem ég fer og breyti ferðavenjum til að forðast hugsanlegar árásir," sagði Rumy Marzook fangelsismálastjóri sem telur sig í hættu hvort tveggja vegna þess að dauðarefsing sé tekin upp á ný og vegna þess hversu gagnrýninn hann hefur verið á spillingu í fangelsum. Stutt er síðan Chandrika Kumaratunga, forseti Sri Lanka, nam úr gildi forsetatilskipun um bann við því að framfylgja dauðadómum. Þrátt fyrir að dauðadómar hafi verið kveðnir upp á Sri Lanka í 120 ár hefur engum þeirra verið framfylgt frá því í júní 1976. Forsetinn ákvað hins vegar eftir morðið á hæstaréttardómara sem var þekktur fyrir að taka af hörku á glæpamönnum að ógilda forsetatilskipunina sem kom í veg fyrir aftökur. Ákvörðun forsetans setur fangelsismálayfirvöld í nokkurn vanda fyrst um sinn. Á þeim 28 árum sem ekki hefur mátt taka menn af lífi hafa gálgarnir grotnað niður, reipin sem menn voru hengdir í rotnað og böðlarnir sem hafa reynslu af starfinu eru allir látnir eða hafa látið af störfum. Því þarf að endurnýja búnaðinn og búa nýja böðulinn undir að inna af hendi starfið sem hann hefur haft með höndum í fjögur ár en aldrei þurft að framkvæma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×