Karzai sór embættiseið 7. desember 2004 00:01
Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afganistans sór embættiseið í dag. Forsetinn, Hamid Karzai, sór íslam hollustu að viðstöddum varaforseta Bandaríkjanna og miklum fjölda erlendra gesta. Það var að vonum mikil öryggisgæsla þegar Karzai sór embættiseiðinn, sá fyrsti sem kjörinn er lýðræðislegri kosningu. Vel á annað hundrað erlendir sendimenn voru viðstaddir embættistökuna. Þeirra á meðal voru Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, og Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra. Segja má að þessir tveir menn eigi mestan þátt í því að Karzai tók við embætti í dag. Að athöfninni lokinni þakkaði forsetinn Bandaríkjunum fyrir hjálpina sem þau hefðu veitt við að losa Afganistan undan oki talíbana. Hann lagði áherslu á að þótt stjórn talíbana hafi verið steypt af stóli væru ennþá einstaklingar sem stunduðu hryðjuverk og þeim yrði að koma fyrir kattarnef. Varaforseti Bandaríkjanna var einnig glaður í bragði. Hann sagði harðstjórnina vera farna, hryðjuverkamennina hafa tvístrast og að afganska þjóðin væri þar með frjáls. Karzai lagði áherslu á að þetta væri aðeins fyrsta litla skrefið á langri leið við að endurreisa Afganistan og gera það að fullgildum meðlimi í samfélagi þjóðanna. Afgana biði risavaxið verkefni sem þeir gætu aðeins tekist á við ef þeir tækju höndum saman, í friði, og létu gamlar væringar heyra sögunni til.
Erlent Fréttir Mest lesið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ Innlent Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Erlent Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Innlent „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Innlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Árásarmannsins enn leitað Erlent Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Innlent Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Innlent Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Innlent Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Innlent Fleiri fréttir Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Árásarmannsins enn leitað Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Kjördagur framundan í Kanada Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað Rúmur helmingur óhress með Trump Eðlilegt að endurskoða sjálfstjórnarlögin Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Gröf Frans páfa opin gestum Sjá meira