Menning

Matselja tekin útlitslega í gegn

"Mér veitti ekkert af þessu og allir í kringum mig eru rosalega ánægðir," segir Klara Sigurbjörnsdóttir sem rekur kaffihús sem þáði allsherjar klössun hjá Hönnu Kristínu Didriksen snyrtifræðingi, Oddný Z hárgreiðslukonu á Solid, Ingigerði Guðmundsdóttur tannlækni og Guðrúnu S. Stefánsdóttur verslunarstjóra í Park Kringlunni. "Það er náttúrulega alltaf brjálað að gera hjá mér og því er þetta alveg meiriháttar og sérstaklega svona fyrir jólin," segir Klara. Hún segist örugglega muna hugsa meira um útlitið héðan í frá. "Ég er alsæl með þetta og ekki er verra að ég missti 2 kíló í leiðinni og ég held að ég hafi ekki verið í svona góðu formi síðan ég var um tvítugt." Klara segist aldrei hafa spáð í að fá sér tattú á varirnar en er alsæl með útkomuna. "Nú get ég vaknað á morgnanna viss um að ég líti vel út um augun og varirnar. Lestu meira um umbreytingarnar á Klöru og skoðaðu ótrúlegar myndir í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.