Erlent

Sjálfsmorðsárás við græna svæðið

Einn eða tveir eru taldir hafa farist í sjálfsmorðssprengjuárás við græna svæðið í Bagdad fyrir stundu. Þetta er annan daginn í röð sem öflug sprenging skekur græna svæðið þar sem ríkisstjórn landsins, erlend sendiráð og herstjórnin eru til staðar. Tólf eru sagðir sárir, sumir hverjir alvarlega, samkvæmt fyrstu fregnum. Árásin var gerð á hlið númer tólf, eins og árásin í gær. Tveir landgönguliðar voru drepnir nærri Bagdad í gær, að því er talsmenn Bandaríkjahers greindu frá í morgun. Ekki var greint frá kringumstæðum þessa en hersveit þeirra hefur einkum verið í nánd við borgirnar Ramadi og Fallujah, þar sem bardagar hafa enn á ný harðnað undanfarna daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×