Menning

Ný sinfóníuhljómsveit stofnuð

Aðstandendur tónleika með Placido Domingo, sem haldnir verða í Egilshöll í mars, eru að stofna heila sinfóníuhljómsveit til undirleiks við söngvarann. Alfreð Alfreðssson, sem vinnur að undirbúningi, segir að það gangi ótrúlega vel að ná saman góðum hljóðfæraleikurum. Þetta sé í rauninni uppvakning á sinfóníuhljómsveit sem Garðar Cortes hafi stofnað á sínum tíma en hefur legið niðri árum saman. Í þeirri hljómsveit séu bæði hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og utan hennar og hefur hún hlotið nafnið Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur.

Að sögn Alfreðs reyndist of dýrt að fá Sinfóníuhljómsveit Íslands til að spila á tónleikunum. Það hefði t.a.m. verið fjórfalt dýrara en tónleikar Jose Carreras kostuðu á sínum tíma. Alfreð segir að þetta sé þó allt gert í góðu og engin leiðindi séu á milli hljómsveitarinnar og tónleikahaldara. Spurður hvort ekkert mál sé að stilla upp nýrri sinfóníuhljómsveit sem sæmi söngvara á borð við Domingo segir Alfreð svo ekki vera. Æfingar eru ekki byrjaðar en hefjast innan skamms og að sögn Alfreðs er ekki loku fyrir það skotið að hljómsveitin spili við fleiri tilefni að loknum tónleikum Domingo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.