Erlent

Þrjár árásir á kosningaskrifstofur

Tveir hafa látist og níu særst í þremur árásum sem gerðar hafa verið á kosningaskrifstofur í Írak í dag. Sú mannskæðasta varð í borginni Dudsjæl í norðurhluta landsins þar sem tveir féllu. Önnur árás var gerð í borginni Kirkuk og sú þriðja á ónefndum stað í Írak. Kosningarnar í landinu eiga, að óbreyttu, að fara fram þann 30. janúar næstkomandi en óöldin í Írak hefur færst mjög í aukana að undanförnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×