Erlent

Erfitt að bera kennsl á líkin

Marga daga tekur að bera kennsl á lík þeirra sem fórust í sprengjuárás á messatjald á herstöð í Írak í gær. Tuttugu og tveir fórust í árásinni.  Ekki liggur enn ljóst fyrir hvernig árásin á messatjaldið í Mósúl var gerð. Upphaflega var hermt að fjölda sprengna hefði verið varpað á stöðina með fyrrgreindum afleiðingum en hópur róttækra múslíma, Ansar al-Islam, lýsti tilræðinu á hendur sér og sagði sjálfsmorðssprengjumann hafa sprengt sig í loft upp við matartjaldið. Talsmenn hersins vilja ekki útiloka það og segja raunar taka marga daga að komast að því hvernig árásin var gerð og hverjir það eru sem fórust. Þó segja hermálayfirvöld í Bagdad að fjórtán bandarískir hermenn hafi farist, fjórir óbreyttir Bandaríkjamenn og fjórir írakskir þjóðvarðliðar. Sjötíu og tveir særðust í árásinni, margir hverjir alvarlega. Þetta er mannskæðasta árás á Bandaríkjaher frá því að stríðinu í Írak lauk. Árásin markar tímamót að því leyti að ekki hefur áður tekist að gera sambærilega árás á herstöð. Borgin Mósúl hefur að auki verið talin til þeirra svæða sem Bandaríkjamenn og írakskar sveitir hefðu á sínu valdi. Það var fyrst fyrir um mánuði síðan, í kjölfar átakanna í Fallujah, sem óróa varð vart í Mósúl. Uppreisnarmenn og skæruliðar birtust þá skyndilega, hröktu írakska lögreglumenn á flótta og lögðu borgina undir sig. Síðan hafa um tvöhundruð fallið í átökum þar. Hersveitir Bandaríkjamanna lokuðu í morgun helstu umferðaræðum út úr borginni og segja sjónarvottar meðal almennings að útgöngubann sé í gildi. Talsmenn Bandaríkjahers vildu ekki staðfesta það. Bush Bandaríkjaforseti fordæmdi árásina, sendi fjöldskyldum fallinna samúðarkveðjur og kvaðst sannfærður um að lýðræði og öryggi myndu hafa betur í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×