Erlent

Átök í Mósúl í morgun

Til harðra átaka kom í borginni Mósúl í Norður-Írak á milli uppreisnarmanna og íröksku lögreglunnar í morgun og hafa átökin nú staðið yfir í nokkra klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá Reuters-fréttastofunni brutust út átök á fleiri en einum stað í borginni og mátti heyra í það minnsta sex háværar sprengingar. Bandaríski herinn hefur enn ekki blandað sér í átökin en uppreisnarmennirnir hafa svarað skothríð lögreglu með handsstýrðum flaugum sem valda miklum skaða. Engar fregnir hafa borist af mannsláti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×