Erlent

Tveir létust í sjálfsmorðsárás

Að minnsta kosti tveir létust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í morgun. Árásarmaðurinn ók leigubíl sem sprakk við vegatálma lögreglunnar við veg sem liggur að höfuðstöðvum Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar í Írak. Að minnsta kosti tuttugu og þrír eru sárir eftir árásina. Allawi sjálfur var víðsfjarri þegar árásin var gerð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×