Erlent

Að minnsta kosti tíu látnir

Bílsprengja sprakk nálægt markaði í Bagdad í Írak í morgun með þeim afleiðingum að minnst tíu létust. Þetta er haft eftir lögreglunni í borginni en upplýsingar eru enn af skornum skammti. Þó er vitað að sprengingin varð í austurhluta Bagdad, nálægt markaði og mosku. Árásarhrina hefur staðið yfir í Írak undanfarna daga en í gær dó sjötíu og einn í sprengjuárásum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×