Erlent

Kann að hafa látist

Japanskur verktaki, sem Ansar al-Súnní hópurinn í Írak rændi á sunnudaginn, kann að hafa látist af sárum sínum. Á heimasíðu fyrirtækisins sem maðurinn starfaði fyrir segir að hann hafi særst alvarlega eftir að uppreisnarmenn réðust að honum og fjórum öðrum mönnum og alls óvíst sé að hann sé enn á lífi. Hinir mennirnir fjórir létust allir. Japönsk stjórnvöld halda þó enn í vonina um að maðurinn sé á lífi og biðluðu í gær til bandaríska hersins og stjórnvalda í Jórdaníu, Sýrlandi og Írak um að reyna að hjálpa til við að fá manninn lausan úr haldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×