Sport

Liverpool áfram í Meistaradeild

Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar þegar Evrópumeistararnir lögðu Kaunas frá Litháen, 2-0 í síðari leik liðanna á Anfield. Samanlagður sigur því 5-1. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool í kvöld á 77. mínútu aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn á af varamannabekknum og er hann því búinn að skora 6 mörk í forkeppninni. Djibril Cisse skoraði síðara markið á 86. mínútu en hann kom einnig inn á sem varamaður. Liverpool mætir annað hvort Tirana frá Albaníu eða CSKA Sofia frá Búlgaríu í 3. umferð sem hefst í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×