Sport

Mourinho barmar sér

Jose Mourinho segir að það sé ekki tekið út með sældinni að eltast við góða leikmenn ef maður er knattspyrnustjóri Chelsea, því lið séu fljót að rísa upp á afturlappirnar ef einhver af leikmönnum þess er orðaður við ensku meistarana. "Við erum með gott lið og því er ekki auðvelt fyrir okkur að ná í leikmenn sem við getum notað. Þessir fáu leikmenn eru svo oft ófáanlegir, liðin vilja svimandi háar upphæðir fyrir þá, eða bara harðneita að selja þá. Ég vona samt að við getum nælt okkur í einn leikmann í mánuðinum, en þó það takist ekki, er ég engu að síður sáttur við leikmannahópinn minn" sagði Mourinho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×