Erlent

Sex látnir eftir loftárásir

Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að Bandaríkjamenn gerðu loftárásir á aðsetur meintra hryðjuverkamanna í Írak í nótt. F-16 orrustuþotur flugu yfir skotmörkin, sem flest eru í og við bæinn Qaim í vesturhluta landsins, og vörpuðu fjölda mjög öflugra sprengna. Árásunum var einnig beint að híbýlum sem grunur lék á að hýstu vopnabúr uppreisnarmanna. 40 létust í samskonar árásum um síðustu helgi. Einnig létust tveir og sex eru særðir eftir að sjálfsmorðsárásarmaður keyrði inn í hlið olíutankbíls í Bagdad í dag. Talið er að maðurinn hafi ætlað að keyra á bifreið írakskra öryggissveita en misst marks.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×