Innlent

Fundað um Kárahnjúkamál

Boðað hefur verið til fundar í félagsmálanefnd Alþingis á föstudaginn kemur að ósk fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni þar sem ræða á starfsmannamál á Kárahnjúkasvæðinu og framkvæmd á samningum við Impregilo. Til fundar við nefndina hafa verið boðaðir aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar Landsvikjunar, Vinnumálastofnunar og félagsmálaráðuneytisins en kanna á hvort ásakanir verkalýðshreyfingarinnar á hendur ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo um að það standi ekki við skuldbindingar sínar eigi við rök að styðjast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×