Sport

Jafntefli Hauka og KA

Haukar og KA skildu jöfn 1-1 í fyrstu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Kristján Ómar Björnsson kom heimamönnum yfir en Hreinn Hringsson jafnaði metin fyrir Norðanmenn. KA er í þriðja sæti með 14 stig en Haukar eru í fjórða sæti með ellefu stig. Þrír leikir eru í deildinni í dag. Þór tekur á móti Víkingi Ólafsvík á Akureyrarvelli klukkan 14 og tveimur tímum síðar hefjast tveir leikir. Fjölnir- KS í Grafarvogi og Völsungur - Víkingur Reykjavík á Húsavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×