Erlent

Lýsa ábyrgð á ódæðinu

Hópur sem kallar sig „Íslamska herinn í Írak“ segist bera ábyrgð á því að búlgörsk þyrla var skotin niður í Írak í gær, með þeim afleiðingum að tíu manns létust. Þá segist hópurinn hafa náð þeim eina úr áhöfninni sem komst lífs af og að hann hafi verið drepinn í gær. Í tilkynningu frá hópnum, sem birtist á arabískri vefsíðu, segir að árásin í gær hafi verið framin til þess að hefna fyrir múslimana sem drepnir voru í árásum bandaríkjahers á borgina Fallujah seint á síðasta ári. Réttmæti yfirlýsingar hópsins hefur ekki verið staðfest.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×