Menning

Toyota kynnir tvo umhverfisvæna

Bílaframleiðandinn Toyota kynnti í vikunni tvo nýja bíla sem ganga fyrir bensíni og rafmagni. Bílarnir hafa fengið skemmtileg nöfn og kallast Harrier Hybrid og Kluger Hybrid. Í báðum bílum er að finna kröftugt Toyota Hybrid-kerfi og E-four en það er fjórhjóladrif sem gengur fyrir rafmagni. Forráðamenn Toyota eru afskaplega ánægðir með nýju bílana og segja þessa kynslóð bíla nýta bensínið til hins ítrasta og sennilega sé nýtingin sú besta í heiminum. Bílarnir eru umhverfisvænir enda er í þeim hreinsikerfi sem hreinsar útblásturinn áður en hann fer út í andrúmsloftið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.