Erlent

Blaðakonan biður sér griða

Ræningjar ítölsku blaðakonunnar Giuliöna Sgrena hafa sent frá sér myndband þar sem hún biður sér griða. Sgrena, sem er fimmtíu og sjö ára blaðamaður á ítalska dagblaðinu Il Manifesto, var rænt í Bagdad í byrjun febrúar. Á myndbandinu biður hún Bandaríkjastjórn um að draga hersveitir sínar frá Írak og biður ítölsku ríkisstjórnina og ítölsku þjóðina um að tala máli sínu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×