Innlent

Gæti borgað sjúkrahús á 12 árum

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs harmar hugmyndir um að bjóða landsmönnum nýjan Landspítala fyrir einkavæðingu Símans, en lýsir um leið fullum stuðningi við aukin fjárframlög í þágu bættrar heilbrigðisþjónustu. Bent er á að Landsíminn hafi á undanförnum árum skilað 2 til 3 milljörðum árlega í ríkissjóð og skilað nærri 2,5 milljörðum fyrstu níu mánuði síðasta árs. "Ef stjórnvöld vilja sækja fjármuni til byggingar nýs hátæknisjúkrahúss til Landsímans er ljóst að rekstrarhagnaður fyrirtækisins á næstu 10 til 12 árum getur hæglega staðið undir slíkri framkvæmd," segir þingflokkurinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×