Menning

Nýir bílar á 5% lægra verði

Verð á öllum nýjum bílum hjá Ingvari Helgasyni ehf. var lækkað í gær um 5% eða um allt að 250 þúsund krónur. Nissan Patrol Luxury kostaði til dæmis 4.580.000 krónur en kostar nú 4.350.000 krónur. Að sögn Kristins Þórs Geirssonar, forstjóra Ingvars Helgasonar, vill fyrirtækið láta viðskiptavini njóta þess að íslensk króna hefur styrkst að undanförnu. "Bílaumboðin hafa ekki staðið sig sem skyldi við að lækka listaverð hjá sér þegar gengisbreytingar gefa tilefni til slíks -- sem auðvitað er óeðlilegt. Við höfum ákveðið að tengja verðlista nýrra bíla hjá okkur við gengið og heitum því að endurskoða verðlagninguna reglulega með tilliti til stöðu krónunnar."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.