Menning

Kabarettgestir sendir heim

Sýningargestir sem áttu miða á Kabarett í Íslensku óperunni í fyrrakvöld voru sendir heim áður en sýningin byrjaði. Felix Bergsson, sem fer með eitt aðalhlutverkanna í sýningunni, hafði tognað illa og á síðustu stundu var ákveðið að fella sýninguna niður.

"Ég datt af hjólinu mínu á leiðinni í vinnuna og snéri mig illa á hné," sagði Felix Bergsson sem lá fyrir og hvíldi sig þegar Fréttablaðið náði tali af honum. "Ég fór upp á slysadeild og lét búa vel um þetta og ætlaði mér alltaf að leika. Í leikhúsinu reynir maður að gera allt sem maður getur til að sýningin verði að veruleika og ég hélt auðvitað í vonina um að ég gæti leikið. Svo þegar á hólminn var komið stóð ég varla í lappirnar svo það var ákveðið að fresta sýningunni, enda enginn til að leysa mig af," sagði Felix og bætti því við að honum þætti þetta ákaflega leiðinlegt gangvart þeim sem komu í leikhúsið.

Samkvæmt upplýsingum frá Íslensku óperunni geta leikhúsgestir sem áttu miða á sýninguna í gær annað hvort fengið endurgreitt eða fengið að nota miðann sinn aftur. Ekki hefur verið ákveðið hvort efnt verði til aukasýningar vegna atviksins og þar sem Felix er staðráðinn í að mæta strax aftur til vinnu er ekki við því að búast að fleiri sýningar falli niður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.