Sport

Van Persie og Benitez bestir í nóvember

Robin Van Persie hefur leikið vel með Arsenal undanfarið, þó hann hafi átt erfitt uppdráttar í einkalífinu síðan í sumar
Robin Van Persie hefur leikið vel með Arsenal undanfarið, þó hann hafi átt erfitt uppdráttar í einkalífinu síðan í sumar NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Robin Van Persie hjá Arsenal var nú í kvöld kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Fyrr í dag samþykkti hann svo að framlengja samning sinn við Arsenal til ársins 2011. Persie skoraði þrisvar í úrvalsdeildinni í nóvember, en var einnig iðinn við kolann í bikarkeppninni og í Meistaradeildinni.

Þá var stjóri Liverpool, Spánverjinn Rafa Benitez, kjörinn stjóri mánaðarins, en hann stýrði Liverpool til fjögurra sigra í röð í mánuðinum og fékk liðið ekki á sig mark í leikjum þessum. Þetta var í fyrsta sinn sem þeir Van Persie og Benitez hljóta þennan heiður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×