Tíska og hönnun

Vinsælar og náttúrulegar vörur

Fyrirtækið Ljós og ilmur ehf. opnaði seint á síðasta ári og selur ýmsar vörur fyrir heimilið og gjafavöru, svo sem ilmkerti, reykelsi og slökunartónlist.

Nú hefur Ljós og ilmur tekið til sölu vörur frá Eve Taylor sem hafa lítið sést hér á landi. Eve Taylor er með breiða línu í nuddolíum, húðvörum og ilmvörum en þær hafa verið vinsælar um allan heim.

Vörurnar hafa verið í sífelldri þróun í um fjörutíu ár sem skilar sér í hreinleika en eingöngu er notast við náttúrulega vörur við gerð Eve Taylor varanna.

Hægt er að kynna sér vöruúrvalið nánar hjá Ljósi og ilmi á Bíldshöfða 12 í Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.