Erlent

Kona og barn á meðal látinna

Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að kastaðist í kekki á milli bandarískra hermanna og hóps andspyrnumanna í borginni Mosul í Írak í dag. Að sögn talsmanns íröksku lögreglunnar er kona og barn á meðal látinna. Auk þeirra sem féllu liggja fimm sárir. Átök í Mosul hafa harðnað mjög frá því nóvember því fjöldi uppreisnarmanna flúði þangað eftir að hafa verið hrakinn út úr Fallujah-borg í viðamikilli aðgerð Bandaríkjamanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×