Innlent

Tillögur um framkvæmdastjóra

Starfshópur á vegum borgarstjóra hefur lagt til að Óskar Dýrmundur Ólafsson, Ragnar S. Þorsteinsson, Hafdís Gísladóttir og Aðalbjörg Traustadóttir verði ráðin framkvæmdastjórar nýrra þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur rann út 28. nóvember og bárust 67 umsóknir. Afgreiðslu umsóknanna var frestað á síðasta fundi borgarráðs til næsta fundar að ósk fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Framkvæmdastjórarnir munu starfa í þjónustumiðstöðvum Miðborgar og Hlíða, Vesturbæjar, Laugardals og Háaleitis og Breiðholts og Árbæjar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×