Sport

Tyrki á leið til CSKA Moskvu

Tyrkneski framherjinn Nihat Kahveci, sem leikur með spænska liðinu Real Sociedad gæti verið á leið til rússneska liðsins CSKA Moskvu en samkvæmt rússneskum fjölmiðlum á hann aðeins eftir að komast að samkomulagi við félagið um laun. Nihat, sem hefur skorað tólf mörk í spænsku deildinni á þessu tímabili, hefur hafnað nýjum samningi hjá spænska liðinu en vitað er af áhuga bæði Chelsea og Manchester United. Real Sociedad á í fjárhagsvandræðum og mun félagið vera tilbúið til að selja hann fyrir tæpan milljarð íslenskra króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×