Sport

Jónatan skoðar samningstilboð

Jónatan Þór Magnússon, fyrirliði KA í handboltanum, hefur undir höndum tveggja ára tilboð frá þýska félaginu Ossweil sem sem leikur í annari deild. Jónatan skoðaði aðstæður hjá þýska félaginu um helgina, en hann sagði í samtali við íþróttadeildina í gærkvöldi að hann myndi setjast yfir samningsdrögin og taka ákvörðun í framhaldi af því. Ossweil er sem stendur í tíunda sæti í suðurhluta 2. deildar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×