Sport

Jón Arnór efstur í kosningu FIBA

Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikmaður sem leikur með rússneska félaginu Dynamo í Pétursborg, er í efsta sæti í netkosningu fyrir stjörnuleik Evrópudeildar FIBA sem fram fer á Kýpur 14. apríl. Jón hefur fengið 23 prósent atkvæða í stöðu bakvarðar Evrópuliðsins sem mun mæta úrvalsliði frá öðrum heimsálfum. Tveir bakverðir eru kjörnir í netkosningunni og er Jón Arnór með 10 prósentum fleiri atkvæði en sá sem vermir þriðja sætið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×