Sport

Nær ÍR að vinna Njarðvík?

Úrslitakeppnin í Intersportdeildinni heldur áfram í kvöld þegar Fjölnir tekur á móti Skallagrími og ÍR-ingar sækja Njarðvík heim. Fyrrnefnda viðureignin gæti orðið mjög spennandi þar sem að liðin tvö voru á áþekku róli í deildinni í vetur og aðeins einn sigurleikur sem skildi þau að. Í Njarðvík eiga flestir von á öruggum sigri heimamanna en þess má geta að ÍR bar sigur úr býtum er liðin mættust í Njarðvík fyrr á þessu ári. Heimamenn tefla fram tveimur nýjum erlendum leikmönnum, Doug Wrenn og Alvin Snow, og verður fróðlegt að fylgjast með gangi mála í Ljónagryfjunni í kvöld. Báðir leikir hefjast kl. 19.15.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×