Sport

Bryant tryggði sigur í lokin

Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sigur á Charlotte Bobcats á útivelli í fyrrinótt með stökkskoti utan af velli þegar rúm sekúnda var til leiksloka. Lokatölur urðu 117-116 og tapaði Bobcats þar með sjötta leik sínum í röð. Bryant átti stórleik í lokafjórðungnum þegar hann skoraði 21 af 32 stigum sínum. "Þetta er sjötta árið mitt með Kobe og það kom mér ekkert óvart að hann skyldi klára þetta. Ég var líka með mjög svipuðum náunga á árum mínum hjá Chicago Bulls, Michael Jordan," sagði Frank Hamblen, þjálfari Lakers.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×