Sport

Miller frá í 4-6 vikur

Sacramento Kings í NBA-körfuboltanum varð fyrir áfalli í fyrradag þegar miðherjinn Brad Miller fótbrotnaði á æfingu. Miller, sem missti af síðustu sex leikjum Kings vegna mars á kálfa, braut á sér vinstri fótinn meðan á skotæfingu stóð. Samkvæmt læknum liðsins mun Miller ekki verða leikfær að nýju fyrr en eftir fjórar til sex vikur. Þess má geta að úrslitakeppnin byrjar eftir sex vikur og Kings má ekki við því að byrjunarmiðherji þess verði fjarverandi þegar lokaátökin hefjast. Miller hefur átt góðu gengi að fagna í vetur og er með 15,6 stig, 9,3 fráköst og 3,9 stoðsendingar að meðaltali í leik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×