Sport

Eiður Smári í byrjunarliðinu

Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Liverpool í fyrri leik liðana í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Eiður mun spila í fremstu víglínu ásamt Didier Drogba en Damien Duff er ekki í hópnum vegna meiðsla. Hjá Liverpool koma Spánverjarnir Xabi Alonso og Luis Garcia inn í liðið en þeir voru ekki með í tapleiknum gegn Crystal Palace um helgina. Liðin:Chelsea: Cech, Johnson, Terry, Carvalho, Gallas, Tiago, Lampard, Makelele, Cole, Drogba, Gudjohnsen Varamenn: Cudicini, Smertin, Kezman, Geremi, Robben, Forssell, Huth Liverpool: Dudek, Finnan, Hyypia, Carragher, Traore, Gerrard, Alonso, Riise, Biscan, Garcia, Baros Varamenn: Carson, Kewell, Cisse, Smicer, Le Tallec, Nunez, Warnock



Fleiri fréttir

Sjá meira


×