Sport

Bandarískar stúlkur með KR

Kvennalið KR í knattspyrnu hefur samið við tvær bandarískar stúlkur sem spila með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Þær heita Carmen Watley og Katherine Winstead og að sögn Írisar Eysteinsdóttur, þjálfara KR, koma þær til landsins 11. maí og munu þær styrkja KR-liðið til mikilla muna. „Við bindum miklar vonir við þær,“ segir Íris.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×