Sport

Liverpool í viðræðum við Reina

Umboðsmaður Jose Reina, markvörð Villarreal í spænska boltanum, hefur staðfest að Liverpool sé í viðræðum við Villarreal um kaup á Reina. Liverpool hefur verið á eftir Reina í þó nokkurn tíma og hefur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, látið njósnara sína fylgjast með leikmanninum að undanförnu. Reina, sem kom til Villarreal frá Barcelona, hefur staðið sig frábærlega í vetur. Hann er með samning til ársins 2012 en klársúla í samningi hans segir að Villarreal geti ekki hafnað boði uppá 8 milljónir punda. ,,Viðræður hafa átt sér stað milli félagana og nú veltur þetta allt á Villarreal," sagði Manuel Garcia Quilon, umboðsmaður Reina. ,,Við erum búnir að tala við þá og leiðin er greið hvað okkur varðar."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×