Sport

Man Utd losa sig við Carroll

Manchester United leysti í dag 8 leikmenn undan samningi, þeirra á meðal markverðina tvo, Norður-Írann Roy Carroll og Spánverjann Ricardo. Carroll gekk til liðs við Man Utd í júlí 2001 frá Wigan fyrir að talið er tvær og hálfa milljón punda. Ljóst er að Man Utd þarf að hafa hraðar hendur og kaupa annan markvörð til að berjast um stöðuna við Ameríkanann Tim Howard. Nokkrir markverðir hafa að undanförnu verið orðaðir við Man Utd og meðal þeirra eru finnski markvörðurinn Anti Niemi hjá Southampton og Sebastian Frey hjá Roma á Ítalíu. Aðrir leikmenn sem voru leystir undan samningi á Old Tafford í dag voru Ramon Calliste, Ben Collett, Daniel Nardiello, David Poole, Lee Lawrence og Paul Tierney.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×