Sport

Figo heilsar mér ekki lengur!

Þjálfari Real Madrid, Vanderlei Luxemburgo upplýsti á blaðamannafundi í dag að samband hans við portúgalska landsliðsmanninn Luis Figo sé við frostmark. Figo sem hefur ekki lagt það í vana sinn að efast um eigin hæfileika hefur ekki heilsað þjálfaranum frá því hann missti byrjunarliðssæti sitt í liðinu snemma í apríl sl. "Venjan var sú að við ræddum allta málin en síðan ég tók hann úr liðinu hefur hann aldrei svo mikið sem heilsað mér." sagði brasilíski þjálfarinn. Nær öruggt má telja að Figo verði seldur í sumar en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og er orðinn 32 ára. Figo hefur látið hafa eftir sér að hann hafi áhuga á því að leika á Englandi áður en ferli hans lýkur.
Figo er í fýlu.MYND/Reuters



Fleiri fréttir

Sjá meira


×