Sport

Boltavakt Vísis - Dregið í leiknum

Dregið hefur verið í leik sem Vísir efndi til í tilefni opnunar Boltavaktarinnar. Tveir heppnir þátttalendur fengu miða fyrir tvo á landsleiki Íslands í undankeppni HM 2006,  við Ungverjaland og Möltu. Þau eru Hinrik Svavarsson og Rósa Harðardóttir. Fyrri landsleikurinn er á laugardag, 4. júní en sá síðari á miðvikudag, 8.júní. Vísir óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar öllum þátttökuna í leiknum. Boltavaktin er samstarfsverkefni Vísis, Tæknivals og Landsbankans. Fylgst er með öllum leikjum í Landsbankadeild karla og eru tíðindi uppfærð á Vísi um leið og þau gerast, hvort heldur mörk eru skoruð, leikmenn spjaldaðir eða breytingar gerðar á liðum. Sami háttur verður hafður á með báða landsleiki Íslands. Fylgist með á Vísi - Áfram Ísland !



Fleiri fréttir

Sjá meira


×