Sport

FH að ganga frá KA í bikarnum

FH er 3-0 yfir í hálfleik gegn KA í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppni karla í knattspyrnu en 5 leikir eru á dagaksrá í kvöld. Ólafur Páll Snorrason, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Tryggvi Guðmundsson hafa skorað mörk Íslandsmeistaranna, Tryggvi úr víti. Fram er 1-0 yfir gegn 1. deildarliði Þórs á Akureyri og skoraði Ríkharður Daðason markið. ÍBV er 2-0 yfir gegn 1. deildarliði Njarðvíkur þar sem Steingrímur Jóhannesson og Bjarni Rúnar Einarsson skoruðu mörkin. Það er markalaust hjá bikarmeisturum Keflavíkur gegn HK og sömuleiðis hjá Grindavík og Fylki. Leikirnir hófust allir kl. 19:15.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×