Sport

GERRARD HÆTTUR VIÐ AÐ HÆTTA !

Sápuóperan um fyrirliða Liverpool, Steven Gerrard tók heldur betur óvænta stefnu í morgunsárið í morgun þegar Rick Parry stjórnarformaður Liverpool tilkynnti að Gerrard sé hættur við að yfirgefa félagið. Steven Gerrard verður sem sagt áfram hjá Liverpool og mun skrifa undir nýjan samning sem færir honum 100.000 pund í vikulaun. “Hann gerir sér núna grein fyrir því hvers virði félagið er honum” sagði Parry í fjölmiðlum í morgun.  Síminn hefur ekki stoppað hjá Parry frá því seint í gærkvöldi og fram á nótt og snemma í morgun. Nú er talið að hálfkæringur Gerrards í málinu sé tilkominn vegna þess að hann stóð í trú  um að nærveru hans væri ekki lengur óskað hjá Liverpool þar sem dregist hafði svo mikið á langinn að gera nýjan samning við félagið. “Ég hef beðið Steven afsökunar ef ég skyldi hafa mistúlkað tilfinningar hans.” Sagði Parry meðal annars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×