Sport

KR fær Valsmenn í heimsókn

Dregið var í fjórðungsúrslit Visa-bikarkeppni karla í hádeginu á Hótel Loftleiðum í dag. Stórleikur umferðarinnar er væntanlega leikur KR og Vals þar sem Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, mætir sínu gamla liði í Frostaskjólinu. 1. deildarlið HK fékk heimaleik gegn Fylki. Leikir í fjórðungsúrslitum Visa-bikarkeppni karla:Það lið sem fær heimaleik er talið upp fyrst: Fram - ÍBV HK - Fylkir FH - ÍA KR - Valur Leikur FH og ÍA fer fram sunnudaginn 17. júlí en aðrir leikir annað hvort 20. eða 21. júlí



Fleiri fréttir

Sjá meira


×