Sport

Gerrard biðst fyrirgefningar

Steven Gerrard gaf út yfirlýsingu í morgun þar sem hann lýsir ást sinni á Liverpool og biðst fyrirgefningar á hringli sínu varðandi hugsanleg félagaskipti. Hann segir einnig að félagið hafi beðið hann afsökunar á að bjóða honum ekki samning strax eftir sigurinn í Meistaradeildinni í lok maí. Þar með lýkur einni mestu sápuóperu síðari ára en Gerrard snerist einnig hugur síðasta sumar þegar Chelsea vildi kappann eins og nú en Liverpool hafnaði 32 milljóna punda tilboði frá Chelsea á mánudag. Liverpool tilkynnir leikmannahóp sinn í dag fyrir forkeppni Meistaradeildarinnar en liðið leikur gegn welska liðinu TNS eftir viku á Anfield. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×